Noregsdvöl

stiklað á stóru....

17.02.2010 23:02:51 / jorturdyr

Styttist í skil!!!

Jæja hvað gerist....jú blogg:lol:

Ritgerð á fullu.Mikið eftir en líka mikið búið. SKil 15.mars8| Og segjum að þetta reddist :lol:

Leynir fær frí á meðan:!: og hreyfing situr því miður á hakanum en reyni þó að hreyfa mig ef ég mögulega get.

Ragnar er á fullu í náminu og er þetta kanski síðasta önnin í kúrsum hjá honum.

Segi þetta gott í bili!

Byð ykkur vel að lifa :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2009 20:29:10 / jorturdyr

Hélt í smá stund ég hefði gleymt lykilorðinu.....

...en vitir menn ég mundi það og er kominn hér inná mitt mjög svo óvirka blogg til að hripa smá fréttir niður sem allur umheimurinn getur lesið. Lesi þeir sem lesa vilja....aðrir ekki ;)

Ég veit nú eiginlega ekki  hvar ég á að byrja frásögum en höldum áfram svona ca þar sem frá var horfið í síðasta bloggi8)

Systir mín kom og var í hálfan mánuð í júli og fórum við öll saman (Ragnar Finnur, ég og Sólrún María) á Ísland um miðjan júli. Þar áttum við þrjár yndislegar vikur í faðmi fjölskyldna og vina. Ferðuðumst meira segja aðeins á Ísafjörð til systur mömmu og fjölskyldu. Það var rosa gaman að koma þangað. Fór alltaf þangað annaðhvert sumar þegar ég var yngri til að heimsækja frænku mína Huldu (dóttir systur mömmu). Þar sem Hulda er flutt í borg óttans hef ég ekki haldið þessari tveggja ára reglu minni að fara á Ísafjörð, því miður.

9. ágúst var það kveðjustund á ný og skundað á flugvöllin og haldið til Noregs á ný. Fólkið sem við vinnum hjá hér í Noregi fór í frí þann 10. ágúst þannig að það var flutt beint á bóndabæinn. Þar vorum við bústjórar meðan þau skelltu sér í viku ferðalag eða svo. Allt gekk stóráfallalaust fyrir sig, lítið um dýralæknahringingar og þ.a.l. ekki nödslakt (neyðarslátrun).

Skólinn brast svo í september hjá Ragnari en ég hélt áfram í minni ofurskemmtilegu ritgerðarsmíð:d

Fólkið á bóndabænum fór svo aftur í frí í byrjun oktober og fluttum við þá aftur á bóndabæinn og vorum bústjórar í rúma viku...það gekk einnig áffallalaust fyrir sig;)
Núna vinnum við rúmlea aðrahverja helgi á búinu "okkar" hér í Noregi. Verður að segjast hér fyrir umheiminum að við vorum afar heppinn með yfirmenn á sveitabænum og erum við mjög ánægð að vinna hjá þeim.
 
Haustið hefur verið bráðskemmtilegt með hyttetur,afmælum, góðum félagskap þeirra fjölmörgu íslendinga og norðmanna sem hér eru, útreiðartúrum, göngutúrum, afmælum og mörgu fleiru.

Við erum búinn að kaupa miða heim og munum við koma á klakann 4 dögum fyrir aðfangadag:)

Hafið það gott í haustinu

kveðja
Hrafnhildur.








» 7 hafa sagt sína skoðun

14.07.2009 20:27:17 / jorturdyr

Tíminn líður.....

rosalega hratt..... en það þýðir líklega að manni leiðist ekki;)

Ágústa vinkona kom í lok júní í nokkra daga heimsókn. Það var rosalega gaman að fá kellu hingað til okkar. Það var hlé milli móta hjá henni og gat hún þá stoppað hjá okkur áður en hún hélt til Gautaborgar að keppa. En áður hafði hún verið í Tékklandi og víðar að keppa, hún er dugleg stelpan:d

Sólrún María systir kom svo nokkrum dögum seinna eftir heimsókn Ágústu. Mjög gaman að fá systu í heimsókn. Hún stoppar hjá okkur í hálfan mánuð eða þar til næstu helgi er við fljúgum öll saman á klakan. Við systur erum búnar að bralla ýmislegt saman á milli þess sem ég er að mjólka og fjósast. Við fórum á ströndina fyrstu dagan sem hún kom enda var þá á milli 30 og 35 stiga hita. Annars hafa síðustu dagar verið heldur vætusamir en þó gott á milli. Hún er búinn að prufa Leyni (hestinn sem ég er með hér úti) og fékk tamningin bara ágætis dóma ......:) henni fannst hann allavega ekkert mjög slæmur......;) Einnig höfum við farið í verslunarferð til Svíþjóðar (vá það er rosa mikið til af flottum sumarkjólum í mörgum búðum) og marga göngutúra hér í kringum Ås.

Heyrumst gott fólk !



» 8 hafa sagt sína skoðun

14.06.2009 21:08:40 / jorturdyr

Júni að verða....

.....hálfnaður og ekkert blogg ennþá. Þetta náttúrulega gengur ekki ;) Margt gerst síðan síðasta blogg.
Við skruppum heim til Íslands á afmælisdaginn minn þann 17.mai ekki hægt að upplifa betri afmælisdag en að komast HEIM. Tilefnið var útskrift systur minnar. Hún útskrifaðist með glæsibrag af starfsbraut þann 22.mai og var haldinn veisla heima í sveitinni þann 23.mai. Gaman að hitta alla og að ná að gleðjast með systur minni og fjölskyldu okkar:d Það vissu fáir að við kæmum heim þessa viku sem við komum og datt því andlitið af öllum þegar við birtumst. Systir mín hafði m.a. ekki hugmynd um að ég kæmi sem var voða gaman:haha:

Ólöf vinkona útskrifaðist einnig þessa vikuna sem ég og Ragnar vorum heima og gat ég því birst óvænt í veislunna hennar sem hún hélt eitt kvöldið fyrir okkur vinahópinn. Það var náttúrulega frábært að ná að hitta þann hóp í þessari stuttu Íslandsreisu:)

Ég og Ragnar höfum verið að vinna heilmikið hér úti en Ragnar heldur meira en ég þar sem hann hefur verið að hjálpa til við heyskapinn. Ég hef því verið að vinna í ritgerðinni inná milli, hitti svo alltaf leiðbeinandan reglulega til að fá fleiri formúlur og aðferðir til að vinna með gögnin mín.

Núna erum við í nokkra daga fríi og höfum við verið að fara í göngutúra, bátsferð á gúmmíbátnum sem við keyptum og hjólatúra. Voða gaman, gaman að njóta þess að vera tvö í heiminum og hafa það gott saman :haha:

Síðan eigum við von á Sólrúnu Maríu systir í heimsókn í hálfan mánuð í júli og hlökkum við rosalega til að fá hana. Við eigum kanski von á öðrum gesti í lok júni en það verður skrifað meira um það ef að því verður ;)

Hafið það gott kæru vinir
Gaman að ef þið nenntuð að kvitta....sé að ég er að fá fullt að heimsóknum á degi hverjum.......



» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2009 21:07:44 / jorturdyr

Júni að verða....

.....hálfnaður og ekkert blogg ennþá. Þetta náttúrulega gengur ekki ;) Margt gerst síðan síðasta blogg.
Við skruppum heim til Íslands á afmælisdaginn minn þann 17.mai ekki hægt að upplifa betri afmælisdag en að komast HEIM. Tilefnið var útskrift systur minnar. Hún útskrifaðist með glæsibrag af starfsbraut þann 22.mai og var haldinn veisla heima í sveitinni þann 23.mai. Gaman að hitta alla og að ná að gleðjast með systur minni og fjölskyldu okkar:d Það vissu fáir að við kæmum heim þessa viku tíma sem við komum og datt því andlitið af öllum þegar við birtumst. Systir mín hafði m.a. ekki hugmynd um að ég kæmi sem var voða gaman:haha:

Ólöf vinkona útskrifaðist einnig þessa vikuna sem ég og Ragnar vorum heima og gat ég því birst óvænt í veislunna hennar sem hún hélt eitt kvöldið fyrir okkur vinahópinn. Það var náttúrulega frábært að ná að hitta þann hóp í þessari stuttu Íslandsreisu:)

Ég og Ragnar höfum verið að vinna heilmikið hér úti en Ragnar heldur meira en ég þar sem hann hefur verið að hjálpa til við heyskapinn. Ég hef því verið að vinna í ritgerðinni inná milli, hitti svo alltaf leiðbeinandan reglulega til að fá fleiri formúlur og aðferðir til að vinna með gögnin mín.

Núna erum við í nokkra daga fríi og höfum við verið að fara í göngutúra, bátsferð á gúmmíbátnum sem við keyptum og hjólatúra. Voða gaman, gaman að njóta þess að vera tvö í heiminum og hafa það gott saman :haha:

Síðan eigum við von á Sólrúnu Maríu systir í heimsókn í hálfan mánuð í júli og hlökkum við rosalega til að fá hana. Við eigum kanski von á öðrum gesti í lok júni en það verður skrifað meira um það ef að því verður ;)

Hafið það gott kæru vinir
Gaman að ef þið nenntuð að kvitta....sé að ég er að fá fullt að heimsóknum á degi hverjum.......



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 20:44:03 / jorturdyr

Ný tölva!!

Kominn með gripinn í hendurnar og reynist hún bara vel greyið.
Það var dálítið fyndið fyrst eftir að blessuð tölvan kom í hús var hún löggð á eldhúsborðið og látinn dúsa þar um stund án þess að eigandinn liti á hana:s Eftir nokkra tíma þá fannst mér nú hálf illa farið með greyið, þetta var eins og lamb sem hafði verið stolið frá móður sinni og svo loks þegar lambið kemst í hendur móðurinnar þá vill ekki móðirinn sjá lambið þar sem önnur kvenkynsvera hafi verið með lambið......ég gat nú ekki verið alveg svo slæm:$
Svo ég og rauða fallega tölvan mín erum að ná sáttum:p Það er ekkert svo vond annara manna mannalykt af henni þannig að þetta sleppur allt til:p

Við Ragnar höfum farið í tvö afmæli síðan ég bloggaði síðast. Það var hjá Kjersti vinkonu minni og hjá Terje vini Ragnars, erum samt náttúrulega öll vinir þó ég orði þetta svona. Kjersti kynntist ég rétt eftir ég flutti til Noregs og tekur hún sömu línu og ég. Ragnar kynntist Terje i vetur og eru þeir að taka sömu línu. Það er gaman að segja frá því að Kjersti og Terje byrjuðu svo saman fyrir nokkrum vikum. Gaman þegar fólk tekur upp á þessu:!:
Í síðustu viku kom Bebba og Gunnfríður í heimsókn í Ås og var mjög gaman að hitta þær.

Á laugardaginn var Ringfest en það er veisla sem er haldinn fyrir útskriftanema,maka og foreldra þeirra. Ég og Ragnar létum okkur ekki vanta þar. Voða gaman, þriggja rétta máltið og ball. Sigga kom á ballið og var voða gaman að hún skildi kíkja á selskapinn. Það er mjög algengt að kvenkynið mæti í bunad (þjóðbúning) á Ringfest. Rosa gaman að sjá marga fjölbreitta búninga en í Noregi eru til mikið fleiri tegundir búningar en á Íslandi. Það er misjafnt milli kommuna og einning mismunandi búningar innan kommunana.
Á Ringfest eru teknir upp hringir þ.e ef maður hefur ákveðið að kaupa hann. Gullhringur rosa fínn og pínu dýr;) Þetta er hringur með stjörnu á sem er tákn skólans og hefur verið eins frá því þessi hefð byrjaði þ.e. eitthvað um 1930. Ég keypti svona hring og gat því dregið hann á fingur minn ásamt samnemendum:lol: Það var voða gaman:haha:
Það var svo djammað langt fram á nótt þar sem partý voru hér og þar eftir ballið. Við skiluðum okkur heim svona þegar birta tók.

Ragnar er í prófum þessa dagana og klárar hann síðasta prófið á miðvikudaginn, voða duglegur strákurinn. Ég hins vegar nýt þess að vera ekki í prófum8)

Hafið það gott mínir kæru
kveðja frá Noregi8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 20:20:48 / jorturdyr

Ný tölva eða......ekki!!!

Hélt síðast þegar ég bloggaði að næsta blogg yrði á nýju tölvunni minn. EN NEi þar sem eg bý í Noregi þá skyldi ég varla geta ætlast til að geta bloggað á tölvuna fyrr en svona fyrsta lagi um fertugt, nb ég er ekki orðinn 26 ára núna. Það urðu sem sagt mistök hjá sendingarfyrirtækinu og ég fékk tölvu frá annari manneskju og hún mína. Þar sem kerfið hér er afar seint og flókið öllu jafna þá getið þið rétt ýmindað ykkur hvað gerist þegar mistök verða!!!!! Nei, ég eiginlega efast um að þið getið ýmindað ykkur það:!::!::!:  Hér er ekki hægt að hugsa sjálfstætt og taka ákvarðanir án þess að það sé laggt undir, segi kanski ekki kónginn, en allt að því:s Ég er sem sagt EKKKI kominn með nýju tölvuna. Nenni ekki að útskýra þetta meira þar sem ég fer í svo vont skap að hlutir í kringum mig verða í hættu. Þess vegna er best að hætta að skrifa um þessa tölvu.....líka svona til að ég hlífi maka mínum. ÞEtta tölvumál er nú þegar búinn að eiða of mörgum mínutum í lífi okkar í pirrelsi og á hún ekki rétt á því að skemma fleiri mínútur í lífi okkar;)

Hér er vorið komið á fullu og allt að blómstra. Rosa gaman:lol:
Grasið sprettur og grænkar ekkert smá hratt, þeir segja bændurnir hér að þeir hefðu ekki trúað því fyrir 1 og 1/2 viku að það væri orðið svona grænt núna 8)

Ragnar fer að byrja í prófum í mai og ég held áfram að vinna í lokaverkefnisvinnunni. Enginn próf hjá mér. Ekkert smá yndislegt:haha:
Inná milli hittum við vini okkar og sprellum eitthvað saman. Í gær var það afmæli hjá Kjersti og um helgina er grill, gleði og grín hjá hópnum mínum. Helgina þar á eftir er Ringfest en það er útskriftarmatur og ball hjá þeim sem eru að klára þetta árið. Ég og Ragnar skellum okkur á það þar sem að ég tileyri hópnum þetta árið;)

es. Takk til allra þeirra sem kvittuðu síðast, ánægð með ykkur:d

Hafið það gott
kv frá Hrafnhildi í sumar skapi:lol:
HB



» 9 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 17:39:19 / jorturdyr

Smá pausa frá bloggi.....

Nú hefur aldeilis verið tekið hlé frá bloggi:$
Ástæðan er sú að tölvan mín varð fyrir smá óhappi og hefur því verið í hléi síðustu daga...kanski vikur....8|  Brátt er hins vegar bót á máli þar sem að ný tölva kemur væntanlega í hús núna komandi viku. Ég er því í tölvunni hans Ragnars núna. Bað hann bara spila eitthvað fallegt fyrir mig á hljómborðið og þá er talvan laus :lol:

Um daginn komu foreldrar Ragnars í heimsókn og var það rosalega gaman. Við skoðuðum hér í kring og eldað var fullt af góðum mat og lágum á meltunni þess á milli. Þau færðu okkur risa páskaegg og fengum við því ekta súkkulaði páskaegg um páskan. Hér eru nefninlega ekki seld venjuleg súkkulaði páskaegg eins og þekkjist á íslandi;)

Gunna kom í heimsókn í síðustu viku frá Danmörku og var rosa gaman að fá hana hingað yfir til okkar í nokkra daga. Við brölluðum ýmislegt saman ásmt Siggu, ss. grilla, ferðast og hafa það gaman saman.

Ég og Ragnar vorum svo að vinna í fjósinu yfir hátíðisdagana sem var fínt. Við munum vinna hjá bóndanum í sumar líka, bæði í fjósinu og ýmis vorstörf sem er mjög fínt. Gott að fá norskan pening svo við þurfum ekki að vera flytja íslenskan pening hingað yfir.... en eins og flestir vita þá er krónan ekki námsmönnum erlendis í hag og verður því voða lítið eftir af henni sé verið að þvælast með hana milli land......8)

Framundan er skóli hjá Ragnari og vinna í lokaverkefni hjá mér, inná milli er það fjós hjá okkur og útreiðar hjá mér. Reynum svo að hreyfa okkur inna milli líka. Vona að hreyfingin fari líka að aukast þar sem sól er aldeilis farinn að hækka á lofti og vorið nánast komið SEM ER YNDISLEGT :d:d

Hafið það gott kæru vinir og endilega kvittið þið sem orkuðuð að lesa síðuna alla leið að þessum punkti.



» 10 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 23:27:18 / jorturdyr

Skjeljadagurinn mikli!!


Allt gengur sinn vanagang hér hjá okkur, skóli, skíði, ræktin, ríða út og vinna;)

Fór reyndar á tveggja daga þing hér um daginn sem er svipað og ráðunautaþingið heima nema pínu stærra. Eitthvað um 400 manns voru skráðir á þingið og fyrirlestrar í fimm sölum. Við vorum nokkur úr bekknum sem skelltum okkur. Við sem höfum Volden sem leiðbeinenda í mastersritgerðinni fengum allt borgað því hann sá um að finna styrktaraðila fyrir okkur. Þannig að við vorum þarna í tvo daga á fínu hóteli í mat og gistingu. Rosa flott þriggja rétta máltið um kvöldið og flott heit. Svo var drukkið og djammað fram á nótt. Daginn eftir voru menn greinilega mis upplitsdjarfir en þó flestir að sjálfsögðu mættir klukkan átta til að heyra á fyrstu fyrilestrana.
Hinir bekkkjarfélagar mínir þurftu því miður að borga þingið sjálfir  og til að halda kostnaðinum niðri fóru þau heim um kvöldið og komu snemma morgunin eftir seinni daginn.
Þarna var fullt af skemmtilegum fyrilestrum um hitt og þetta, ég valdi þó mest að hlusta á   kynbætur, fóðrun og aðbúnað nautgripa.
Verð að segja frá einni upplifun á þinginu, kanski pínu ljótt hugsað en þetta hugsaði ég nú samt....... Fyrri morguninn tókum við nokkur lestina hér frá Ås til Lilleström því þingið var í Lilleström. Við tókum lest klukkan 7 um morguninn til að ná á skráningu milli 8 og 9. Í fyrstu kaffipásunni klukkan 10:30 datt næstum af mér andlitið því það var bara ávextir í boði ásamt kaffi og tei. Ég hélt að þetta væri grín því fólk var að flykkjast þarna langar vegalengdir á þingið og án efa orðið svangt. Allavega var ég það8| Ég hugsaði; "mikið djö... eru þeir nýskir að bjóða ekki upp á aðeins meira en ávexti" og hugsunarvélinn hélt áfram og hugsaði ég; "ætli þetta eigi eftir að verða svona í tvo daga og ég hreinlega komi sár svöng heim eftir tveggja daga veru á hóteli í Noregi"8| Tek það fram að ég hef ekkert á mót i ávöxtum tel þá afar holla og góða í alla staði en stundum þarf maður aðeins meiri fyllingu. Ég átti sem betur fer tvær rúgbrauðsneiðar með osti í fórum mínum sem ég gat gætt mér á inní fundarsal eftir kaffipásuna. Skammaðist mín sko ekki fyrir að taka upp mínu vænu sneiðar þrátt fyrir að kaffipásan væri ný búinn. Mér fannst ég að hluta til minna á Norðmenn því þarna hafði ég matarbita í smjörpappír með mér en hins vegar veit ég ekki hvort einhver Normaður hafi hugsað eins ljótar hugsanir eins og ég í sambandi við ávextina:$
Þetta var hins vegar eina pásan sem að var svona matar snauð og kom ég langt frá því sár soltinn eftir tveggja daga hótelveruna. Allar hinar máltíðarnar, voru vægast sagt fjölbreyttar og góðar:lol: Þannig að það er spurning hvort þeir hafa séð Íslendinginn vera sársvangan eftir fyrstu kaffiðpásu og bætt ráð sitt..........:!:

Ætli það sé ekki best að ég útskýri fyrirsögn þessarar færslu. Ég er sem sagt að baka bollur núna fyrir bolludaginn sem er á morgunn. Eða sko þetta áttu að verða bollur en urðu skeljar í staðinn. Ég talaði við mömmu fyrr í dag og gleymdi að spyrja um gömlu góðu uppskriftina sem alltaf hefur verið notuð á heimili mínu. Þannig að í kvöld þegar að ég fer að baka bollur ákveð ég nota uppskrift úr fínu uppskriftabókinni minni því mér fannst óþarfi að vera hringja heim mörgum sinnum á dag. Þó kostar það sama á mánuði óháð hve oft ég hringi og var það því ekki í sparnaða skyni sem að hringdi ekki. Nema hvað þessi uppskrift er ekki að virka og urðu þetta svona ljómandi skeljar í staðinn fyrir bollur, egginn voru búinn þannig að ég gat ekki gert nýja hræru með uppskriftinni frá mömmu. Fyrst var ég pínu pirruð en svo ákváðum við að það yrði bara skelja dagur hjá okkur á morgunn í staðinn. Skeljar með rjóma og skeljahatt ofaná með glassúr :p
Af þessu lærði ég að aldrei skal treysta á nýjar fínar matreiðslubækur heldur alltaf að hringja í mömmu og fá uppskriftir sem notast hefur verið við í ættinni síðustu áratugi:)

Eigið góðan bolludag, ég ætla eiga góðan skeljadag:lol:

kv
HB



» 9 hafa sagt sína skoðun

04.02.2009 11:21:35 / jorturdyr

Skíði

Margt hefur gerst síðan síðast. Þar ber fyrst að nefna heimkomu bónda míns:haha:
ÞAð hefur allt verið á fullu frá því hann kom. Við rendum til Elverum og nágrennis daginn eftir að hann kom þ.e. á föstudaginn. Við vorum að sækja dekk sem ég festi kaup á meðan bóndinn var heima á Íslandi, þetta eru hin fínustu vetrardekk. Það góða við þetta er að felgurnar fylgdu með :p Við heimsóttum Oddnýu,Ola og Svavar í Elverum. Fengum frábærar móttökur og gistingu sem var alveg dásamlegt. Við brunum svo heim á laugardeginum með viðkomu í Ikea. Alltaf hægt að kaupa eitthvað hagnýtt þar. Ástæða þess að við brunuðum svo fljótt heim á laugardeginum var að við áttum fjós um kvöldið og byrjar það klukkan 16. Ragnar var að sjá fjósið í fyrsta skiptið og leist honum bara vel á. Við fórum svo aftur í fjósið á sunudagsmorguninn en þá er mæting klukkan 06:00. Fjósastarfið leggst vel í okkur,voða notalegt og þægilegt fólk sem við vinnum hjá.

Við tókum okkur til á mánudaginn og fjárfestum í gönguskíði. Svona er þetta, varla búið að fá fyrstu útborgun og strax farið að eyða.......sannir Íslendingar þar á ferð. Best að halda þjóðarstolti okkar uppi hér úti líka. Fjölmiðlarnir hafa nú alveg séð um það hingað til að bera fréttir frá okkar ríka landi............
Prufuðum skíðin í gærkvöldi og var það feiknar stuð. Hér eru brautir um allt. Annars keyptum við skíði með stálkant þannig að við eigum að komast líka þó það séu ekki þjappaðar brautir;)
Við erum á því að við séum að verða "inn" í Noregi þegar við eigum svona fín skíði. Maður er víst ekki maður með mönnum nema eiga svoleiðis:lol:

Hafið það gott
kveðja frá skíðafólkinu



» 6 hafa sagt sína skoðun

26.01.2009 19:31:24 / jorturdyr

Ágætu lesendur

Allt gengur sinn vanagang. Rosa gaman í vinunum og þá sérstaklega í bústörfunum :lol:

Það var komment á síðastu færslu frá Helga Einarssyni. Hann skyldi bara ekkert í því af hverju Ragnar væri ekki nefndur á nafn. Ástæðan er sú að ég var orðinn svo leið á því að nefna alltaf að við værum ekki í sömu flugvél og bla bla.... því hann er ekki kominn til Noregs en er væntanlegur undir lok vikunar:haha: Mér til mikillar ánægju, loksins er hann að koma:d:lol::haha: Hann þurfti ekkert að mæta hér í janúar og var því ákveðið að hann myndi staldra aðeins lengur við á Íslandi. Ég hins vegar þurfti að sinna fjölskyldu minni hér úti þ.e. honum Leyni kallinum. Svo voru svona vinnur hér og þar sem að ég þurfti að sinna. Líklega meira vit hjá mér að vinna inn norskar krónur en íslenskar :$

Ég læt þetta nægja í bili. Ég og Sigga ætlum að fagna því að það er mánudagur......:lol: þetta hljómar mjög gruggugt.....en hún var að klára próf í dag stelpan.

Yfir og út
kv
HB


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.01.2009 20:36:50 / jorturdyr

Sunnudagskveld

Síðasta föstudag ákváðum við þrjár stúlkur af íslensku bergi brotnar að skella okkr á skauta í Osló. Þetta voru ég, Sigga og Gunna. Stemninginn var gríðarleg og hafa sjaldan sést eins flinkar og fimar stúlkur á torginu í Oslo. Við dönsuðum þarna fram og til baka á svellinu og dilluðum okkur í takt við tónlistinna. Urðum að róa okkur aðeins niður þegar leið á dansinn hjá okkur því það var farið að hópast fólk að svellinu til að  fylgjast með íslendingunum svo að örtröð varð á götunni8) Þegar skautgleðinni lauk slóruðumst við um Oslóborg svona eins og tíðkast víst oft þegar hangið er í stórborgum;)
Við kvöddum svo Gunnu um kvöldið þar sem hún er að flytjast til Danmerkur í nokkra mánuði til að stunda doktorsnám sitt. Hennar verður sárt saknað og er ég strax farinn að hlakka til er hún flytur til baka til Noregs.

Leynir var hreyfður um helginna við mikla gleði okkar beggja....eða allavega hjá mér. Jú ég er nú alveg viss um að Leyni finnist þetta rosa stuð því hann er öllu jafna jákvæður og glaður í útreiðartúrunum. Hins vegar er hann ekki alltaf jafn glaður þegar hann þarf að gera æfingar í hendi. Það er of hægt fyrir hann og óþarfa hangs að vera dútla eitthvað að krossa fótunum hingað og þangað:cry:

Ég fór einnig í fjós hér skamt frá þar sem ég hef tekið að mér að leysa af á kúabúi hér skamt frá. Þetta er nýtt fjós með góðri vinnuaðstöðu. Róbót og græjum, mjög gaman að komast í tæri við slíkt þar sem best er að prufa hlutina áður en maður dæmir þá mjög mikið.

Annars leið helgin á ógnar hraða þar sem nú er allt í einu komið sunnudagskveld og vinna í fyrramálið.

Gangi ykkur vel í komandi viku kæru lesendur
kveðja
Hrafnhildur




» 9 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 12:38:56 / jorturdyr

Árið !

Gleðilegt ár kæru vinir.
Anna Lóa ! þú bjargaðir því að ég bloggaði á ný þar sem ég stend fast við það að blogga ekki nema að ég fái að minsta kosti eitt komment:) Já ég er þrjóskari en margir halda.......

Nú er ég kominn á ný til Noregs.
Byrjuð að vinna í skóla sem móðurmálsstuðningsaðili. Þá er ég með íslenskri stúlku í nokkra tíma á viku í skólanum. Þetta er til að auðvelda henni að komast inní norskuna og fá hjálp frá aðila sem hefur sama móðurmál og hún.

Lítið hefur gerst í mastersritgerðinni, er að vinna í að sanka að mér gögnum og panta tíma hjá leiðbeinandanum:)

Hesturinn minn hann Leynir hefur verið í öðru hesthúsi (en hann var í fyrir jól) meðan ég var á Íslandi. Hann kemur núna á eftir í hesthúsið sitt á ný. Þá fer allt að færast í réttar skorður. Hlakka til að fara hreyfa hann.

Læt þetta nægja í bili.

Heyr heyr


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 16:23:41 / jorturdyr

Heim

Jæja, nú er það flug heim eftir nokkra tíma :haha::haha:    Hafið það gott:p




» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2008 06:53:48 / jorturdyr

Snjór

Takk fyrir allar kveðjurnar á síðasta blogg, er ánægð með ykkur:d

Hér styttist í próf hjá mér sem er eftir viku og einn dag. Verkefnavinna stendur sem hæst en sést brátt fyrir endan á henni.

Hér er komin snjór og voða jólalegt,tréin taka sig vel út í snjónum :p

Gakk hægt inn í jólastressið kæru vinir

Heyrumst
kveðja
Hrafnhildur


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  27  Alls: 18431