Kominn með gripinn í hendurnar og reynist hún bara vel greyið.
Það var dálítið fyndið fyrst eftir að blessuð tölvan kom í hús var hún löggð á eldhúsborðið og látinn dúsa þar um stund án þess að eigandinn liti á hana

Eftir nokkra tíma þá fannst mér nú hálf illa farið með greyið, þetta var eins og lamb sem hafði verið stolið frá móður sinni og svo loks þegar lambið kemst í hendur móðurinnar þá vill ekki móðirinn sjá lambið þar sem önnur kvenkynsvera hafi verið með lambið......ég gat nú ekki verið alveg svo slæm

Svo ég og rauða fallega tölvan mín erum að ná sáttum

Það er ekkert svo vond annara manna mannalykt af henni þannig að þetta sleppur allt til

Við Ragnar höfum farið í tvö afmæli síðan ég bloggaði síðast. Það var hjá Kjersti vinkonu minni og hjá Terje vini Ragnars, erum samt náttúrulega öll vinir þó ég orði þetta svona. Kjersti kynntist ég rétt eftir ég flutti til Noregs og tekur hún sömu línu og ég. Ragnar kynntist Terje i vetur og eru þeir að taka sömu línu. Það er gaman að segja frá því að Kjersti og Terje byrjuðu svo saman fyrir nokkrum vikum. Gaman þegar fólk tekur upp á þessu

Í síðustu viku kom Bebba og Gunnfríður í heimsókn í Ås og var mjög gaman að hitta þær.
Á laugardaginn var Ringfest en það er veisla sem er haldinn fyrir útskriftanema,maka og foreldra þeirra. Ég og Ragnar létum okkur ekki vanta þar. Voða gaman, þriggja rétta máltið og ball. Sigga kom á ballið og var voða gaman að hún skildi kíkja á selskapinn. Það er mjög algengt að kvenkynið mæti í bunad (þjóðbúning) á Ringfest. Rosa gaman að sjá marga fjölbreitta búninga en í Noregi eru til mikið fleiri tegundir búningar en á Íslandi. Það er misjafnt milli kommuna og einning mismunandi búningar innan kommunana.
Á Ringfest eru teknir upp hringir þ.e ef maður hefur ákveðið að kaupa hann. Gullhringur rosa fínn og pínu dýr

Þetta er hringur með stjörnu á sem er tákn skólans og hefur verið eins frá því þessi hefð byrjaði þ.e. eitthvað um 1930. Ég keypti svona hring og gat því dregið hann á fingur minn ásamt samnemendum

Það var voða gaman

Það var svo djammað langt fram á nótt þar sem partý voru hér og þar eftir ballið. Við skiluðum okkur heim svona þegar birta tók.
Ragnar er í prófum þessa dagana og klárar hann síðasta prófið á miðvikudaginn, voða duglegur strákurinn. Ég hins vegar nýt þess að vera ekki í prófum

Hafið það gott mínir kæru
kveðja frá Noregi