Noregsdvöl

stiklað á stóru....

22.11.2008 23:04:07 / jorturdyr

Heimferð og Jolebord


Við erum á lokasprettinum fyrir jólafrí svona eins og gengur og gerist hjá skólafólki á þessum tíma ársins. Ég fer í próf 12. des og hefst þar með prófatörnin mín þann dag. Það er hins vegar gaman frá því að segja að hún endar einnig þann 12.des þar sem ég fer aðeins í eitt próf þetta árið. Þetta er klukkutíma munnlegt próf og verður seint sagt að ég hlakki til þessa klukkutíma <img src=" />. Að loknum þessum klukkutíma eru bara tveir og hálfur sólahringur þangað til að ég lendi á Íslandi. <img src=" />
Ragnar fer í fjögur próf og er hann búinn 15. des. Þetta árið ætluðum við að koma heim með sömu flugvél en það gekk ekki þar sem aðeins eitt sæti á ódýrasta fargjaldinu var eftir þann 16.des. Þannig að Ragnar kemur 16.des en ég 14.des. Ég fer svo út 7.jan en óvíst með Ragnar þar sem hann þarf ekki að mæta hér fyrr en í lok í janúar.

Vorum að koma af þessu glæsilega jólaborði hjá Josefa og Tonje. Þær tóku sig saman og buðu okkur nokkrum í jólamat. Mjög gaman að smakka ribbe, julepölse, pinnekjöt og tilheyrandi. Þetta var hinn fínasti matur. Sérstaklega fannst mér pinnekjötið gott, en það er saltað kindakjöt8| Það verður seint sagt að Norðmenn hugsi ekki vel um okkur Íslendingana og finnum við vel fyrir stuðning hjá vinum okkar. Norðmenn eru gæða fólk upp til hópa:p

Vel gengur með Leyni en töltið og höfuðburður eru á réttri leið. Hann er viljugur og áhugasamur sem hjálpar mikið við m.a. gangsetningu. 

Endilega kvittið fyrir komina, mér finnst svo gaman að vita hverjir kíkja við og eru að fylgjast með okkur hér úti :d

kveðja
Hrafnhildur




» 15 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 20:37:31 / jorturdyr

Hestbak

Leynir frá Litla-Ármóti mætti á svæðið daginn áður en ég kom til Noregs þ.e.þann 26.okt. 2008. Við hjúin járnuðum hann í síðustu viku. Leynir er 5 vetra foli frá pabba sem ég stefni að þjálfa í vetur og selja líklega í vor. Mjög gaman að hafa eitthvað að stússa með skólanum. ÞAð er svo notalegt að fara út í hesthús að moka og ríða út. Það er ekki allt umkringt trjám þar sem hesthúsið því möguleiki er möguleiki á að ríða meðfram ökrum og túnum ásamt því að geta skellt sér inní skóg. Leynir er afar áhugasamur og lýst bara vel á elgina og bambana sem við höfum verið að mæta í útreiðartúrum okkar;)

Benni vinur okkar Ragnars var í heimsókn núna síðustu daga. Ekki leiðinlegt að fá þann kappa í heimsókn. Við eyddum hluta af helginni í heimsókn hjá Helga Einarssyni í Oslo sem tók afar vel á móti okkur. Fórum þar á Íslendingaball sem var þvílíkt fjör. Helgi hélt teiti heima hjá sér fyrir hluta af Íslendingunum sem að fóru svo á ballið. Fengum svo gistingu í Oslo sem var mjög gott. Þurftum því ekki að vera þvælast niðrá lestastöð seint að kveldi sem ég var afar ánægð með því áhugi minn að hitta misgæfulegt lið á lestarstöðinni er ekki mikill8| H

Skólinn gengur þokkalega og hlakka ég mikið til að klára síðasta áfanga minn. Það styttist í próf og er því stefnan hjá okkur Ragnari að spýta í lófana og klára þessa törn:$

Byð ykkur vel að lifa:)

» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 18399