Hélt síðast þegar ég bloggaði að næsta blogg yrði á nýju tölvunni minn. EN NEi þar sem eg bý í Noregi þá skyldi ég varla geta ætlast til að geta bloggað á tölvuna fyrr en svona fyrsta lagi um fertugt, nb ég er ekki orðinn 26 ára núna. Það urðu sem sagt mistök hjá sendingarfyrirtækinu og ég fékk tölvu frá annari manneskju og hún mína. Þar sem kerfið hér er afar seint og flókið öllu jafna þá getið þið rétt ýmindað ykkur hvað gerist þegar mistök verða!!!!! Nei, ég eiginlega efast um að þið getið ýmindað ykkur það



Hér er ekki hægt að hugsa sjálfstætt og taka ákvarðanir án þess að það sé laggt undir, segi kanski ekki kónginn, en allt að því

Ég er sem sagt EKKKI kominn með nýju tölvuna. Nenni ekki að útskýra þetta meira þar sem ég fer í svo vont skap að hlutir í kringum mig verða í hættu. Þess vegna er best að hætta að skrifa um þessa tölvu.....líka svona til að ég hlífi maka mínum. ÞEtta tölvumál er nú þegar búinn að eiða of mörgum mínutum í lífi okkar í pirrelsi og á hún ekki rétt á því að skemma fleiri mínútur í lífi okkar

Hér er vorið komið á fullu og allt að blómstra. Rosa gaman

Grasið sprettur og grænkar ekkert smá hratt, þeir segja bændurnir hér að þeir hefðu ekki trúað því fyrir 1 og 1/2 viku að það væri orðið svona grænt núna

Ragnar fer að byrja í prófum í mai og ég held áfram að vinna í lokaverkefnisvinnunni. Enginn próf hjá mér. Ekkert smá yndislegt

Inná milli hittum við vini okkar og sprellum eitthvað saman. Í gær var það afmæli hjá Kjersti og um helgina er grill, gleði og grín hjá hópnum mínum. Helgina þar á eftir er Ringfest en það er útskriftarmatur og ball hjá þeim sem eru að klára þetta árið. Ég og Ragnar skellum okkur á það þar sem að ég tileyri hópnum þetta árið

es. Takk til allra þeirra sem kvittuðu síðast, ánægð með ykkur

Hafið það gott
kv frá Hrafnhildi í sumar skapi

HB