rosalega hratt..... en það þýðir líklega að manni leiðist ekki

Ágústa vinkona kom í lok júní í nokkra daga heimsókn. Það var rosalega gaman að fá kellu hingað til okkar. Það var hlé milli móta hjá henni og gat hún þá stoppað hjá okkur áður en hún hélt til Gautaborgar að keppa. En áður hafði hún verið í Tékklandi og víðar að keppa, hún er dugleg stelpan

Sólrún María systir kom svo nokkrum dögum seinna eftir heimsókn Ágústu. Mjög gaman að fá systu í heimsókn. Hún stoppar hjá okkur í hálfan mánuð eða þar til næstu helgi er við fljúgum öll saman á klakan. Við systur erum búnar að bralla ýmislegt saman á milli þess sem ég er að mjólka og fjósast. Við fórum á ströndina fyrstu dagan sem hún kom enda var þá á milli 30 og 35 stiga hita. Annars hafa síðustu dagar verið heldur vætusamir en þó gott á milli. Hún er búinn að prufa Leyni (hestinn sem ég er með hér úti) og fékk tamningin bara ágætis dóma ......

henni fannst hann allavega ekkert mjög slæmur......

Einnig höfum við farið í verslunarferð til Svíþjóðar (vá það er rosa mikið til af flottum sumarkjólum í mörgum búðum) og marga göngutúra hér í kringum Ås.
Heyrumst gott fólk !